
Fit-PC tölvan er hörku atvinnutæki
Fit-PC tölvukassinn er í atvinnutækja flokki, steyptur álkassi með engum loftkæliholum. Kassinn sjálfur er notaður sem kæling. Hæfni Fit-PC2 tölvunar að standast högg, titring og hátt hitastig gera hana að best hæfustu PC-tölvunni fyrir atvinnutæki og notkun í bílum eða skipum.
Fit-PC tölvan hentar sem margmiðlunartæki í stofuna.
Full HD myndupplausn um HDMI tengi (1080P, H.264 afkóðun) og hágæða hljóðupplausn, ekkert bakgrunnsuð vegna viftu eða disks, lítil stærð og stjórnun með IR-þráðlausum búnaði gerir fit-PC tölvuna að fyrirtaks tölvu fyrir margmiðlunina í stofunni þinni. Lítil rafmagnseyðsla og engir slitfletir valda því að hægt er að hafa tölvuna í gangi allan sólarhringinn.
Svarta Fit-PC tölvan er græn vara
Fit-PC2 skarar fram úr öllum öðrum tölvum hvað rafmagnssparnað áhrærir.6 wött er meðal aflnotkun tölvunnar í Windows-XP eða Linux vinnslu og fer upp í 8 wött við hámarksálag. Notkun á Fit-PC2 hefur engin skaðleg áhrif á umhverfið og 370g tölvukassinn er svo lítill að umhverfismengun verður í lágmarki þegar hún endar lífdaga sína.
Tækniupplýsingar:
Örgjörvi Intel Atom Z510/Z530 1,6GHz , RAM – Innra minni 1 GB DDR2-533, Gagnaminni 160 GB harður diskur
Skjáútgangur DVI upp til 1920x1200, Hljóð Stereo-útgangur, hljóðnema inngangur, WiFi: 802.11b/g
Ethernet 1000BaseT RJ45, USB: 6 USB 2.0 tengingar (Háhraða 480 Mbit/sek), Vinnsluspenna 12V DC



|