Gleðilegt nýtt ár 2012. Með nýju ári fögnum við nýrri vefsíðu fyrirtækisins. Nýtt útlit en samt einfalt og hreinlegt. Einfaldleikinn er stundum alltaf bestur og óþarfi að flækja hlutina. Fyrirtækið er að renna inn á sitt átjánda ár í starfssemi og geri aðrir betur. Við höfum verið lánssöm að eiga góða og trygga viðskiptavini og öfluga samstarfsaðila.
Í góðu samstarfi við Rafiðnaðinn og Rafiðnaðarskólann hefur fyrirtækið haldið námskeið í "Margmiðlunartækni heimilisins". Verkefninu er ætlað að efla og kynna fyrir Rafverktökum og öðrum áhugasömum aðilum margmiðlunartækni heimilisins, möguleikum á notkun tækninnar að streyma mynd- og hljóðefni ásamt uppsetningu búnaðar í því sambandi.
H. Árnason ehf. er stofnað árið 1994. Fyrirtækið hefur ætíð verið starfrækt sem alhliða
Tölvuþjónustustufyrirtæki. Starfsmenn fyrirtækisins eru fjórir í
dag. Viðgerðaraðstaða er í húsnæði Mörkinni 3, 108 Reykjavík.
Sími: 554-0177.
Fyrirtækið hefur kappkostað sig til að fylgja hraðri tækniþróun
í viðhaldi og uppsetningum á netstýrikerfum s.s. Microsoft
Windows 2000/2003/2008/SBS2001. Fyrirtækið
hefur mikla reynslu í uppsetningum Internet tenginga ásamt
póstþjónum s.s. Microsoft Exchange server og netstýrikerfum frá
Microsoft. H. Árnason ehf. er aðili að Microsoft Partner
Programi frá Microsoft.